Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

16. september 2010

Trúnaðarmannaráð krefst þess að réttindi séu virt

A fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi haustsins sem haldinn var í vikunni samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun:
Trúnaðarmannaráð SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu mótmælir þeirri kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaganna. Það er sjálfsagður réttur starfsmanna að halda stéttarfélagsaðild sinni. Lagabreyting hefur áður verið gerð til að tryggja réttindi starfsfólks við yfirfærslu málaflokka milli ríkis og sveitarfélaga. Þegar yfirfærsla heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis átti sér stað árið 1989-90, fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni að þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig. Lagabreytingu þarf til en réttindi fólks eru í húfi, því án hennar er einfaldlega verið að iðka gamaldags vinnubrögð með því að flytja fólk nauðungarflutningum milli félaga. Mikil óvissa ríkir um starfsöryggi félagsmanna SFR innan málaflokksins, yfirfærslan á að fara fram nú um áramótin  og enn hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Skýr vilji meirihluta félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR. Trúnaðarmannaráð SFR krefst þess að ríkið taki ábyrgð á að tryggja réttindi og kjör liðlega 1200 félagsmanna SFR innan málaflokksins með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Fundurinn telur það einnig vera eðlilega kröfu að samsvarandi breyting verði nú gerð á samningsréttarlögunum og gerð var 1990 og að starfsmenn við málefni fatlaðra geti átt áframhaldandi aðild að SFR, þrátt fyrir yfirfærslu málaflokksins, og að nýir starfsmenn geti valið sér stéttarfélag.


Slóðin þín:

Fréttir