Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktar- og sjúkrasjóður

SFR félagar geta sótt um styrki úr Styrktar- og sjúkrasjóði vegna;

  • veikinda, hafi þeir klárað veikindarétt sinn
  • sjúkraþjálfunar / sjúkranudds / hnykklækninga
  • krabbameinsleitar (vegna legháls, brjósta, ristils og blöðruhálskirtils), 
    grunnrannsókn og framhaldsrannsókn
  • áhættuskoðunar hjá Hjartavernd
  • sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjafar
  • dvalar á Heilsustofnun NLFÍ 
  • líkamsræktar
  • "Lazer" augnaðgerða og gleraugnakaupa
  • tannviðgerða
  • fæðingar barna, ættleiðingar, smásjár- eða glasafrjóvgunar
  • heyrnartækja
  • útfarar

Sjá nánar í úthlutunarreglum.

Markmiðið með sjóðnum er að veita félagsmönnum fjárhagsaðstoð í veikinda- og slysatilvikum, að styðja og efla félagsmenn vegna endurhæfingar eftir slys eða sjúkdóma og að styðja og efla félagsmenn í forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi, heilsufar og heilbrigði starfsmanna.

Stjórn sjóðsins
Hildur Gunnarsdóttir frá Biskupsstofu/Þjóðkirkjunni
Jenný Olga Pétursdóttir frá Veðurstofu Íslands
Jóhanna Lára Óttarsdóttir frá Sýslumanninum í Reykjavík
Karl Valdimarsson frá Tryggingastofnun ríkisins
Védís Guðjónsdóttir frá Landbúnaðarháskóla Íslands
Viðar Ernir Axelsson frá Landhelgisgæslunni (varamaður)


Slóðin þín:

Sjóðir og styrkir » Styrktar- og sjúkrasjóður